Til baka í fréttir

    Ný tenging við Payday og DK

    Ágúst 2025

    Ný tenging við Payday og DK

    Ný virkni: Einfaldara utanumhald á vörukostnaði með tengingu við Payday og DK.

    Við höfum kynnt til leiks nýja virkni í appinu sem gerir skráningu og yfirlit yfir vörukostnað í verkefnum bæði einfaldara og skilvirkara. Nú er hægt að skrá, fylgjast með og greina vörukostnað beint í appinu, með sjálfvirkri samstillingu við Payday og DK bókhaldskerfin.

    Rauntímauppfærslur tryggja að allar upplýsingar séu áreiðanlegar og samræmdar milli kerfa, sem sparar tíma og dregur úr hættu á tvískráningu eða mistökum. Með sundurliðun kostnaðar fá verkefnastjórar og bókhald betri innsýn í stöðu verkefna og geta tekið upplýstari ákvarðanir — þau sjá þessa upplýsingar í bókhaldskerfinu, en þær koma beint úr TimeEd.

    Þessi nýja lausn er skref í átt að einfaldara utanumhaldi, betra yfirliti og aukinni skilvirkni í rekstri.

    Viltu kynningu eða aðstoð? Hafðu samband við þjónustuteymið okkar á hjalp@timeed.is.

    Við notum vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni vefsins, greina umferð og fyrir markaðsstarf okkar. Með því að smella á „Samþykkja“ samþykkir þú notkun þeirra.