Persónuverndarstefna TimeEd

    Síðast uppfært: apríl 2026

    Við leggjum áherslu á að persónuupplýsingar þínar séu öruggar.

    1Ábyrgðaraðili

    Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er:

    TimeEd ehf., kt. 480312-0150

    Netfang: info@timeed.is

    2Hvað eru persónuupplýsingar?

    Allar upplýsingar sem hægt er að tengja við þig — nafn, kennitala, netfang, símanúmer, staðsetning, ljósmynd og þess háttar.

    3Hvaða gögn söfnum við?

    Þegar þú heimsækir vefinn okkar skráum við grunnupplýsingar eins og IP-tölu, vafra, stýrikerfi og tímasetningu heimsóknar. Ef þú fyllir út fyrirspurnarform söfnum við þeim upplýsingum sem þú gefur upp. Þessi gögn notum við eingöngu til að bæta vefinn og þjónustu okkar.

    4Geymslutími gagna

    Við geymum gögn þín meðan þú ert í viðskiptasambandi við okkur. Gögn sem tengjast bókhaldsskyldu eru geymd í 7 ár í samræmi við íslensk lög. Þegar reikningur er lokaður er hægt að óska eftir eyðingu persónuupplýsinga, að svo miklu leyti sem lög leyfa.

    5Hýsing og staðsetning gagna

    Gögn eru geymd á öruggum netþjónum innan Evrópu. Við notum aðskilda netþjóna í þremur löndum, daglegar öryggisafritanir á tvo aðra staði, strangt aðgangsstýrt umhverfi og DDOS-vörn.

    6Vafrakökur

    Vefur okkar notar vafrakökur til að tryggja grunnvirkni og greina notkun. Við notum eftirfarandi þjónustu frá þriðja aðila sem setja sínar kökur:

    • Google Analytics: Safnar ópersónugreinanlegum tölfræðigögnum um umferð og hegðun notenda til að hjálpa okkur að bæta vefinn.

    • Google Ads / Tag Manager: Til að fylgjast með árangri auglýsinga.

    Þú getur slökkt á vafrakökum í stillingum vafrans þíns (t.d. Chrome, Safari, Opera).

    7Miðlun til þriðja aðila — nánar

    Við deilum aldrei persónuupplýsingum í viðskiptalegum tilgangi. Við gætum þó deilt gögnum við:

    • Vinnsluaðila sem aðstoða okkur við rekstur þjónustunnar (t.d. hýsingarfyrirtæki), bundna trúnaðarsamningum.

    • Stjórnvöld, ef við berum lagalega skyldu til þess.

    8Réttindi þín

    Samkvæmt persónuverndarlögum áttu rétt á að fá aðgang að upplýsingum þínum, leiðrétta þær, óska eftir eyðingu, andmæla eða takmarka vinnslu, flytja gögn þín, draga samþykki til baka og leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd. Réttur til eyðingar er ekki fortakslaus — lög geta kveðið á um varðveisluskyldu.

    9Breytingar á stefnunni

    TimeEd ehf. áskilur sér rétt til að uppfæra þessa stefnu. Verulegar breytingar verða kynntar notendum með tölvupósti eða tilkynningu innan kerfisins. Dagsetning síðustu uppfærslu er alltaf sýnileg efst á síðunni.

    Sendu okkur línu á info@timeed.is

    Við notum vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni vefsins, greina umferð og fyrir markaðsstarf okkar. Með því að smella á „Samþykkja“ samþykkir þú notkun þeirra.