TimeEd Stimpilklukka komin fyrir iPad/Android spjaldtölvur
Febrúar 2026

TimeEd Stimpilklukka gerir tímaskráningu á vinnustað einfaldari, hraðari og öruggari.
Með nýrri Stimpilklukku geta starfsmenn stimplað sig inn og út á sameiginlegri spjaldtölvu við inngang, afgreiðslu eða á öðrum föstum stað á vinnustað. Lausnin er sérstaklega hugsuð fyrir fyrirtæki þar sem margir mæta á sama stað og þurfa fljótlega og áreiðanlega skráningu á vinnutíma. Starfsfólk skráir sig á örfáum sekúndum og upplýsingarnar birtast strax í TimeEd á vef og í síma.
Stimplunin einfaldar daglegt utanumhald og bætir yfirsýn. Notendur geta stimplað sig inn og út með símanúmeri, fengið skýra staðfestingu á skjá eftir skráningu og kerfið endurstillir sig sjálft aftur á innskráningarskjá. Fyrir stjórnendur skilar þetta sér í réttari tímaskráningu, færri gloppum og betri yfirsýn yfir mætingu starfsfólks.
Tímarnir fara beint inn í TimeEd og þaðan áfram í bókhaldskerfi fyrirtækisins. Þannig minnkar handvirk vinna, dregur úr tvískráningu og einfaldar ferlið frá skráningu til uppgjörs.
Stimpilklukkan er fáanleg á íslensku, ensku, pólsku, eistnesku, lettnesku, litháísku, spænsku, rússnesku og úkraínsku.
Lausnin er komin á Android og iPad spjaldtölvum.