Til baka í fréttir

    Teymi í TimeEd

    September 2025

    Teymi í TimeEd

    Í TimeEd hefur nú verið bætt við nýrri og öflugri teymisvirkni sem einfaldar verkefnastjórnun verulega. Í stað þess að úthluta verkefnum á einstaka starfsmenn er nú hægt að úthluta þeim beint á teymi.

    Hvert teymi inniheldur skilgreindan hóp starfsmanna og þegar verkefni er sett á teymi dreifist það sjálfkrafa á réttan hóp. Þetta hentar sérstaklega vel í verkefnum þar sem mannafli breytist, vaktaskipulag er sveigjanlegt eða margir koma að sama verki.

    Með teymum í TimeEd verður yfirsýn betri, minni handavinna við breytingar og verkefnastjórnun skilvirkari – bæði fyrir stjórnendur og starfsfólk.

    Við notum vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni vefsins, greina umferð og fyrir markaðsstarf okkar. Með því að smella á „Samþykkja“ samþykkir þú notkun þeirra.